Kosning hófst kl. 12.00 í dag, fimmtudaginn 9. júní og henni líkur kl. 20.00 þriðjudaginn 14. júní. Félagsmenn fá vef- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er hér til hægri á síðunni (Kosning) ef síðan birtist með ensku texta þá smellið á íslenska fánann efst á síðunni. Aðeins er hægt að kjósa einu sinni á hverju lykilorði.
Ef einhverjir hafa ekki tölvuaðgang þá bendum við þeim á að hafa samband við skrifstofu eða formann síns félags og fá aðstoð.
Það er mjög mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og viljum við því hvetja félagmenn til að nota atkvæðisrétt sinn og taka þar með afstöðu til samningsins.
Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga, skrifaði í gærkvöldi undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2011 til 30. september 2014. Launahækkanir og eingreiðslur samningsins eru á svipuðum nótum og samið var um á almenna vinnumarkaðnum fyrr í mánuðnum. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstunni og skal atkvæðagreiðslu vera lokið 15. júní n.k.
Þrátt fyrir að ekki sé lokið við gerð kjarasamnings þá hefur Samninganefnd Sambandsins beint þeim tilmælum til sveitarfélaga sem hún semur fyrir, að greiða út orlofsuppbót núna 1. maí eins og kjarasamningur gerir ráð fyrir. Greidd verður sama upphæð og á síðasta ári eða kr. 25.800 fyrir fullt starf, sjá nánar í grein 1.8 í kjarasamningi aðila.
Verði samið um hærri orlofsuppbót verður mismunurinn greiddur út í næstu útborgun eftir að samningum er náð
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar óskar félagsmönnum sínum, fjölskyldum þeirra og öllu samstarfsfólki nær og fjær gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.