Póstlisti




Fréttir

  • Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á baráttufund þann 1. maí. Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram að Ingólfstorgi en safnast verður saman við Hlemm kl. 13 og þaðan verður gengið niður Laugaveg að Ingólfstorgi þar sem útifundurinn hefst kl. 14:10.

     kaffisamsæti í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, að loknum útifundinum á Ingólfstorgi og þangað eru allir félagsmenn velkomnir.

  • Við minnum félagsmenn BSRB á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir bandalagið er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.
  • Kosning hófst kl. 12.00 í dag, fimmtudaginn 9. júní og henni líkur kl. 20.00 þriðjudaginn 14. júní. Félagsmenn fá vef- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er hér til hægri á síðunni (Kosning) ef síðan birtist með ensku texta þá smellið á íslenska fánann efst á síðunni. Aðeins er hægt að kjósa einu sinni á hverju lykilorði.
    Ef einhverjir hafa ekki tölvuaðgang þá bendum við þeim á að hafa samband við skrifstofu eða formann síns félags og fá aðstoð.

    Það er mjög mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og viljum við því hvetja félagmenn til að nota atkvæðisrétt sinn og taka þar með afstöðu til samningsins.

Samflotið skrifar undir

30. maí 2011

Samflot, samtök bæjarstarfsmannafélaga, skrifaði í gærkvöldi undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2011 til 30. september 2014. Launahækkanir og eingreiðslur samningsins eru á svipuðum nótum og samið var um á almenna vinnumarkaðnum fyrr í mánuðnum. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum á næstunni og skal atkvæðagreiðslu vera lokið 15. júní n.k.
 

Í Samfloti bæjarstarfsmannafélaga eru: Félag opinberra starfsmanna Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna Suðurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu, Starfsmannafélag Fjallabyggðar, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Seltjarnarness, Starfsmannafélag Skagafjarðar og Starfsmannafélag Vestmannaeyja.