Lög Stamos
1. gr. Nafn félagsins er Starfsmannafélag Mosfellsbæjar STAMOS.
2. gr. Félagið er hagsmunaheild starfsmanna Mosfellsbæjar.Tilgangur félagsins er m.a.:
a) að fara með fyrirsvar um kjarasamninga og aðrar ákvarðanir af hendi starfsmanna skv. lögum og reglugerð um kjarasamninga sveitarfélaga.
b) að gæta hagsmuna félaga sinna launalega, félagslega og faglega t.d. um starfskjör, eftirlaun og önnur réttindi sem og skyldur.
c) að vinna að bættum samhug félaga sinna með aukinni kynningu þeirra og samhjálp eftir því sem föng eru á.
d) að stuðla að auknu samstarfi opinberra starfsmanna. Félagið tekur ekki aðstöðu til stefnu stjórnmálaflokka.
3. gr. Í félaginu eru allir starfsmenn Mosfellsbæjar og stofnana hans sem þess óska og hafa a.m.k. hálft aðalstarf hjá bæjarfélaginu. Stjórninni er þó heimilt að veita undanþágu frá þessari grein þegar sérstaklega stendur á.
4. gr. Hver sá félagi, er segir upp starfi og gengur úr þjónustu bæjarfélagsins eða stofnana þess, missir öll félagsréttindi frá sama tíma. Félagar geta óskað þess að stjórn félagsins hafi afskipti af ráðningarkjörum, starfskjörum, eftirlaunum, brottvikningu og öðru því sem máli skiptir í samræmi við tilgang félagsins.
5. gr. Félagsmönnum er skylt að gefa stjórn félagsins allar nauðsynlegar upplýsingar í samræmi við tilgang félagsins.
6. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, fjármálaritari. Formaður skal kosinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Formaður skal kosinn til eins árs en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára þó þannig að í fyrsta skipti skulu tveir meðstjórnendur ganga úr stjórn eftir eitt ár eftir hlutkesti. Í varastjórn skulu kosnir þrír menn til eins árs í senn. Endurskoðendur skulu vera tveir og einn til vara.
7. gr. Formaður er aðalforsvarsmaður félagsins. Hann kallar stjórn og varastjórn og stjórnar fundum, auglýsir félagsfundi og skipar fundarstjóra. Ritari heldur gerðabók og færir í hana ágrip af því sem gerist á stjórnar- og félagsfundum. Gjaldkeri varðveitir alla fjármuni félagsins. Allt handbært fé skal geymt í banka eða á annan hátt sem stjórn ákveður. Gjaldkeri greiðir alla reikninga, eftir að formaður hefur áritað þá, og leggur fram endurskoðaða ársreikninga á aðalfundi.
9. gr. Boða skal til félagsfundar svo oft sem stjórnin telur þörf á. Þá getur 1/3 félagsmanna skriflega krafist þess að almennur félagsfundur verði haldinn og skulu þeir tilgreina fundarefni. Er þá formanni skylt að boða til fundar innan 7 daga frá því honum barst krafan.
10 gr. Félagsfund skal boða með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara með auglýsingu á vinnustöðum. Jafnan skal tilgreina fundarefni í fundarboði.
Aðalfundur jafnt og almennir félagsfundir eru lögmætir sé til þeirra boðað samkvæmt fyrirmælum þessarar greinar. Takist ekki að ljúka fundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsfundar svo fljótt sem kostur er á.
11 gr. Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Skal hann haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert
Sérstök verkefni aðalfundar eru:
1. Formaður flytur skýrslu um félagsstarfið á liðnu starfsári.
2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins.
3. Tillögur til lagabreytinga, enda hafa þær borist stjórninni fyrir lok febrúarmánaðar.
4. Tekin ákvörðun um árgjöld félagsmanna.
5. Kosning stjórnar samkvæmt 6. gr.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Kosning fulltrúa á þing BSRB.
8. Önnur mál sem fram koma á fundinum.
12. gr. Fundum skal stjórnað samkvæmt almennum fundarsköpum. Við afgreiðslu almennra mála nægir einfaldur meirihluti. Við breytingar á lögum og reglum félagsins, en þær má aðeins gera á aðalfundi, þarf ¾ greiddra atkvæða fundarmanna til þess að lögmætar séu. Ef fleiri en einn fá sama atkvæðamagn við kosningu skal hlutkesti ráða úrslitum.
13. gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Til að standa straum af kostnaði við starfsemi félagsins greiða félagsmenn árgjald til þess samkvæmt ákvörðun aðalfundar og skal miðast við hundraðshluta fastra launa. Félagsmönnum ber að greiða sérstakt árgjald til BSRB samkvæmt ákvörðun bandalagsins. Gjalddagar skulu vera a.m.k. tveir á ári og skal gjaldkera heimilt að taka gjöldin hlutfallslega af launum.
14..gr. Félagið má ekki leysa upp nema með samþykki ¾ hluta aðalfundar félagsins enda hafi þess verið getið í fundarboði að fyrir lægi tillaga um félagsslit.


