Starfsmannafélag Mosfellsbæjar á heilsárshús í Vaðnesi og íbúð á Akureyri.
Orlofshúsið í Vaðnesi stendur í fallegu umhverfi og aðbúnaður er allur mjög
góður. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með rúmum fyrir sjö manns en einnig
fylgir með barnarúm. Við bústaðinn er stór verönd með heitum potti. Gasgrill og svalahúsgögn fylgja með. Við bústaðinn er flöt með nokkrum púttbrautum, leiktæki og húsi fyrir börnin með húsgögnum og leikföngum.

Íbúðin á Akureyri er í nýuppgerðu virðulegu húsi við Hafnarstræti 86a í hjarta Akureyrar með fallegu útsýni. Íbúðin er á miðhæð hússins og er með tveimur svefnherbergjum.
Vetrarleiga í Vaðnesi og á Akureyri:
Helgi 7.000 krónur, vika 15.000 krónur, dagur inn í miðri viku 2.000 krónur.
Fyrirspurnir og umsóknir um vetrarleigu sendist í netfangið stamosorlof@gmail.com
Helgi 7.000 krónur, vika 15.000 krónur, dagur inn í miðri viku 2.000 krónur.
Fyrirspurnir og umsóknir um vetrarleigu sendist í netfangið stamosorlof@gmail.com
Orlofsnefnd Stamos:
Helga Haraldsdóttir: sími: 895 5634
Guðrún Þorsteinsdóttir: sími: 843 9482


