Póstlisti




Fréttir

  • Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á baráttufund þann 1. maí. Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram að Ingólfstorgi en safnast verður saman við Hlemm kl. 13 og þaðan verður gengið niður Laugaveg að Ingólfstorgi þar sem útifundurinn hefst kl. 14:10.

     kaffisamsæti í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, að loknum útifundinum á Ingólfstorgi og þangað eru allir félagsmenn velkomnir.

  • Við minnum félagsmenn BSRB á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir bandalagið er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.
  • Kosning hófst kl. 12.00 í dag, fimmtudaginn 9. júní og henni líkur kl. 20.00 þriðjudaginn 14. júní. Félagsmenn fá vef- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er hér til hægri á síðunni (Kosning) ef síðan birtist með ensku texta þá smellið á íslenska fánann efst á síðunni. Aðeins er hægt að kjósa einu sinni á hverju lykilorði.
    Ef einhverjir hafa ekki tölvuaðgang þá bendum við þeim á að hafa samband við skrifstofu eða formann síns félags og fá aðstoð.

    Það er mjög mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og viljum við því hvetja félagmenn til að nota atkvæðisrétt sinn og taka þar með afstöðu til samningsins.

 

Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð
Starfsmannafélags Mosfellsbæjar
  1. grein
 Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður STAMOS og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í þessari greinagerð.
 
  1. grein   

Tekjur sjóðsins eru :

a)     Framlag bæjarsjóðs samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Bæjarsjóðs Mosfellsbæjar.
b)    Vaxtatekjur.
 
3grein  
Markmið sjóðsins eru:
Að styrkja félaga í STAMOS til náms er nýtist viðkomandi í starfi.
Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gerir þá hæfari einstaklinga.
 
  1. grein  
 Heimilt er að sjóðurinn taki þátt í kostnaði af námskeiðum eða einstökum fyrirlestrum fyrir starfshópa eða félagsmenn STAMOS almennt, sem efnt kynni að vera til fyrir forgöngu STAMOS eða Mosfellsbæjar eða þessara aðila sameiginlega. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja fræðslu- og menningarferðir einstakra starfshópa.
 
  1. grein  
 Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.
 
6. grein
  Reglur þessar skulu endurskoðaðar í febrúar ár hvert.
 
  1. grein  
  Reglugerð þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar.
                                                                                                 
 
                                                                                     Tók gildi 22.maí. 2008
 
 
                                                           
 
                                                            Úthlutunarreglur
 
  1. grein
 Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn starfsmannafélagsins umsókn, á þar til gerðum umsóknareyðublöðum, þar sem fram kemur lýsing á því námi eða verkefni sem styrkurinn skal renna til, áætlaðan kostnað, hvenær fyrirhugað er að stunda námið eða verkefnið sem styrkurinn er veittur út á og aðrar þær upplýsingar sem stjórn kann að telja nauðsynlegar.  Á grundvelli þeirra tekur stjórnin ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi skuli fá.
 
  1. grein  
 Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna og tilgreina m.a. nákvæmlega til hvers þeir ætla að verja styrkfénu.
 
  1. grein
 Aðeins fastráðnir starfsmenn geta sótt um styrk úr sjóðnum og skal þeirri meginreglu vera fylgt að starfsmaður eigi rétt á úthlutun úr sjóðnum eftir eins árs starf.
 
  1. grein  
 Hámarksúthlutun til einstaklingar er kr. 110.000 annað hvert ár.  Einstakir starfshópar geta fengið úthlutun þriðja hvert ár að hámarki 45.000 
 
  1. grein  
 Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram eftir að umsækjandi hefur gert grein fyrir kostnaði t.d. með því að leggja fram reikninga og eftir að stjórn sjóðsins hefur tekið málið til umfjöllunar.
 
  1. grein  
  Nauðsynlegt er að styrkveitingar séu skráðar í spjaldskrá svo upplýsingar séu fyrir hendi um námskeið, styrk upphæði og nafn starfsmanns.
 

 

Sækja umsókn hér