Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð
Starfsmannafélags Mosfellsbæjar
- grein
Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður STAMOS og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í þessari greinagerð.
- grein
Tekjur sjóðsins eru :
a) Framlag bæjarsjóðs samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Bæjarsjóðs Mosfellsbæjar.
b) Vaxtatekjur.
3. grein
Markmið sjóðsins eru:
Að styrkja félaga í STAMOS til náms er nýtist viðkomandi í starfi.
Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gerir þá hæfari einstaklinga.
- grein
Heimilt er að sjóðurinn taki þátt í kostnaði af námskeiðum eða einstökum fyrirlestrum fyrir starfshópa eða félagsmenn STAMOS almennt, sem efnt kynni að vera til fyrir forgöngu STAMOS eða Mosfellsbæjar eða þessara aðila sameiginlega. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja fræðslu- og menningarferðir einstakra starfshópa.
- grein
Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.
6. grein
Reglur þessar skulu endurskoðaðar í febrúar ár hvert.
- grein
Reglugerð þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar.
Tók gildi 22.maí. 2008
Úthlutunarreglur
- grein
Þeir sem æskja styrks úr sjóðnum skulu senda stjórn starfsmannafélagsins umsókn, á þar til gerðum umsóknareyðublöðum, þar sem fram kemur lýsing á því námi eða verkefni sem styrkurinn skal renna til, áætlaðan kostnað, hvenær fyrirhugað er að stunda námið eða verkefnið sem styrkurinn er veittur út á og aðrar þær upplýsingar sem stjórn kann að telja nauðsynlegar. Á grundvelli þeirra tekur stjórnin ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi skuli fá.
- grein
Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna og tilgreina m.a. nákvæmlega til hvers þeir ætla að verja styrkfénu.
- grein
Aðeins fastráðnir starfsmenn geta sótt um styrk úr sjóðnum og skal þeirri meginreglu vera fylgt að starfsmaður eigi rétt á úthlutun úr sjóðnum eftir eins árs starf.
- grein
Hámarksúthlutun til einstaklingar er kr. 40.000 annað hvert ár. Einstakir starfshópar geta fengið úthlutun þriðja hvert ár að hámarki 45.000
- grein
Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram eftir að umsækjandi hefur gert grein fyrir kostnaði t.d. með því að leggja fram reikninga og eftir að stjórn sjóðsins hefur tekið málið til umfjöllunar.
- grein
Nauðsynlegt er að styrkveitingar séu skráðar í spjaldskrá svo upplýsingar séu fyrir hendi um námskeið, styrk upphæði og nafn starfsmanns.
Sækja umsókn hér
Útfararstyrkur
Greiddur er 150.000 kr styrkur vegna útfarar, enda hafi hinn látni verið félagi í STAMOS a.m.k. 1 ár fyrir andlát. Einnig er greiddur útfararstyrkur vegna þeirra sem að látið hafa af störfum sökum aldurs. Þá er greiddur styrkur til félaga vegna útfarar barna þeirra 18 ára og yngri. Styrkurinn er greiddur til þess sem útförina annast.
Tók gildi 22.maí. 2008
Umsókn um útfararstyrk hér


