Póstlisti




Fréttir

  • Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á baráttufund þann 1. maí. Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram að Ingólfstorgi en safnast verður saman við Hlemm kl. 13 og þaðan verður gengið niður Laugaveg að Ingólfstorgi þar sem útifundurinn hefst kl. 14:10.

     kaffisamsæti í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, að loknum útifundinum á Ingólfstorgi og þangað eru allir félagsmenn velkomnir.

  • Við minnum félagsmenn BSRB á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir bandalagið er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.
  • Kosning hófst kl. 12.00 í dag, fimmtudaginn 9. júní og henni líkur kl. 20.00 þriðjudaginn 14. júní. Félagsmenn fá vef- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er hér til hægri á síðunni (Kosning) ef síðan birtist með ensku texta þá smellið á íslenska fánann efst á síðunni. Aðeins er hægt að kjósa einu sinni á hverju lykilorði.
    Ef einhverjir hafa ekki tölvuaðgang þá bendum við þeim á að hafa samband við skrifstofu eða formann síns félags og fá aðstoð.

    Það er mjög mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og viljum við því hvetja félagmenn til að nota atkvæðisrétt sinn og taka þar með afstöðu til samningsins.

Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
 
Formaður Edda Davíðsdóttir, Tómstundafulltrúi gsm. 615 1532, edda@mos.is
Varaformaður Herdís Kristinsdóttir, Íþróttamiðstöðinni að Varmá
Gjaldkeri : Helga Haraldsdóttir , Lágafellsskóla
Ritari : Kristín Erlendsdóttir "Didda", Leikskólanum Hlaðhömrum
Meðstjórnandi : Sigrún Edda Hringsdóttir, Lágafellsskóla
 
Stjórnarfundir STAMOS eru fyrsta þriðjudag í mánuði.  Fundastaður er Hlégarður önnur hæð.  Fyrir utan fastan fundartíma er fundað eftir þörfum.
Ef að einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur á stamos@stamos.is 
 
Trúnaðarmenn Stamos október 2010
 
Bæjarskrifstofa,Bókasafn og Tónlistarskóli.. Hrafnhildur Sigurhansdóttir
Þjónustumiðstöð . ..............
Leikskólinn Hulduberg.......María Ómarsdóttir
Leikskólinn Hlaðhamrar.....Hrönn Guðjónsdóttir
Leikskólinn Hlíð....................Sunna Mjöll Sigurðardóttir
Leikskólinn Reykjakot........Erna Valdimarsdóttir
Leikskólinn Krikaskóla......Valdís Konráðsdóttir
Varmárskóli, fél.Ból............Gróa Karlsdóttir
Lágafellsskóli.......................Margrét Guðmundsdóttir 
Íþróttamiðstöðin Varmá.....Ragnar Sveinsson
Íþróttamiðstöðin Lágafelli.. Lasse Brandt Jensen
 
 
 
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar var stofnað 3. apríl 1975. Stofnfélagar voru 21.
Stofnfundinn sátu nær allir félagsmenn og formaður BSRB, Kristján Thorlasius sem óskaði félaginu góðs gengis. Fyrsti formaður félagsins var Einar Kristjánsson, húsvörður og gegndi hann því embætti í 10 ár. Aðrir í fyrstu stjórn félagsins voru G. Bjarni Guðmundsson gjaldkeri og Unnur Karlsdóttir ritari. Í varastjórn voru Þorsteinn Jónsson og Gunnhildur Hrólfsdóttir. 
Stofnfélagar voru:    Anna Jóna Ragnarsdóttir, Baldur Jónsson, Baldvin Skæringsson, Bjarni Bjarnason, Bjarni Guðmundsson, Dóra Diego Þorkelsdóttir, Einar Kristjánsson, Gísli Magnússon, Guðbjörg Þórðardóttir, Guðrún Indriðadóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Hreinn Þorvaldsson, Ingveldur Sveinsdóttir, Jóhann Gíslason, Jón Friðjónsson, Salome Þorkelsdóttir, Sólveig Ingibergsdóttir, Sveinn Magnússon, Unnur Karlsdóttir og Þorsteinn Jónsson.
 4. apríl 1975 var sent bréf til hreppsnefndar Mosfellshrepps og sagt frá stofnun félagsins og markmiðum og óskað viðurkenningar á því sem samningsaðila um laun og kjör félagsmanna samkv. a og b lið annarrar greinar laga félagsins. 
 4. júlí 1975 samþykkti hreppsnefnd Mosfellshrepps félagið sem samningsaðila fastráðinna starfsmanna. 
 9. maí 1975 var sent bréf til BSRB og óskað inngöngu í samtökin.
 15. janúar 1976 var fyrsti samningafundur með kaup- og kjaranefnd Mosfellshrepps. Í samninganefnd Starfsmannafélagsins voru Einar Kristjánsson, G. Bjarni Guðmundsson og Unnur Karlsdóttir. Í samninganefnd Mosfellshrepps voru: Gunnlaugur Jóhannsson, Sæberg Þórðarson, Haukur Níelsson og Jón Baldvinsson sveitarstjóri.
 Fyrsti kjarasamningur félagsins var gerður í apríl 1976. Nafni félagsins var breytt á aðalfundi 1978 í Starfsmannafélag Mosfellssveitar STAMOS
 
 Formenn hafa verið:
 
Einar Kristjánsson                         1975 - 1984
Guðrún E. Árnadóttir                      1984 - 1985
Matthías Guðmundsson               1985 - 1986 
Sigrún Sigurðardóttir                    1986 - 1987
Jóna Margrét Guðmundsdóttir   1987 - 1988
Herdís  Þorgeirsdóttir                   1988  - 1989
Magnús Lárusson                          1989 - 1990
Daði Runólfsson                             1990 - 1991
Valdís Ólafsdóttir                           1991 - 1995
Anna Sigurðardóttir                       1995 - 1996
Oddgeir Þór Árnason                    1996 - 2001
Gísli Snorrason                               2001 - 2005
Sveingerður Hjartardóttir             2005 - 2007
Edda R. Davíðsdóttir                      2007 -
 
Heimild: Punktar sem Einar Kristjánsson tók saman.