Fara beint í efni
Til baka í fréttir
30. apríl 2026

1. maí – baráttudagur verkalýðsins

1. maí – baráttudagur verkalýðsins

1 maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins þar sem launafólk um allt land kemur saman til að minna á mikilvægi réttláts samfélags, góðra kjara og velferðar allra.

Starfsmannafélag Mosfellsbæjar (STAMOS) tekur þátt í deginum ásamt öðrum aðildarfélögum BSRB og hvetur félagsfólk til að taka þátt í hátíðarhöldum dagsins.

Í ár er slagorð dagsins:
„Styrkur okkar er velferð allra.“


Dagskrá 1. maí í Reykjavík

Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  • Kl. 13:00 – Safnast saman á Skólavörðuholti

  • Kl. 13:30 – Ganga hefst niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.

  • Kl. 14:00 – Útifundur á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.

Á útifundinum verða flutt ávörp og tónlistaratriði í anda dagsins.
Dagskráin verður táknmálstúlkuð.


Mikilvægi dagsins

1 maí er ekki aðeins hátíðardagur heldur líka áminning um sameiginlegan styrk launafólks. Með samstöðu og virkri þátttöku getum við haft áhrif á samfélagið og unnið að bættum lífskjörum fyrir alla.

STAMOS hvetur félagsfólk sitt til að mæta, taka þátt og sýna samstöðu með öðrum launþegum.

Deila frétt

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir