Fara beint í efni

Búastaðabraut 9, neðri hæð

Vestmannaeyjar

6

Gestir

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

120

Stærð

Upplýsingar

Um húsið

Íbúð á neðri hæð í einbýlishúsi, um 120 m2 að stærð.

Í íbúðinni er þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með 180 cm rúmi, svefnherbergi með 160 cm rúmi, svefnherbergi með svefnsófa. Í íbúðinni eru sængur og koddar fyrir 6 manns. Bakaraofn, örbylgjuofn, airfryer, Nespressoi kaffivél, samlokugrill, brauðrist, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari. Í eldhúshúsinu er allur almennur borðbúnaður fyrir 10 manns.        Í stofu er sófi,stólar,skenkur og sjónvarp.

Baðherbergi með salerni, sturtu og baðkari (sturta í baðkari).

Í íbúðinni eru hreinlætisáhöld og hreinsiefni.

Fyrir framan íbúð er góð verönd með stólum, útiborði. Gasgrill (1 gaskútur). Fylla skal á gaskút þegar gasið klárast, taka nótu og Stamos endurgreiðir.

Þægindi
Wi-Fi
Eldavél
Uppþvottavél
Þurrkari
Eldhús
Bakarofn
Þvottavél
Sjónvarp
Gasgrill
Nespresso
Örbylgjuofn
Innritun og útritun

Innritun

15:00

Útritun

12:00

Þetta þarf að taka með

Rúmföt, handklæði stór og lítil, viskustykki, borðtuskur, salernispappír, eldhúsrúllu, hand-og baðsápu.

Húsreglur

Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi.  Hver hlutur á að vera á sínum stað.  Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutímanum.  

Heimilt er að vísa gestum úr íbúðinni sem fara ekki eftir settum reglum.    

Reykingar eru stranglega bannaðar inni í íbúðinni

ALLT DÝRAHALD ER STRANGLEGA BANNAÐ Í ÍBÚÐINNI

Mikilvægt

Við komu skal kynna sér brunavarnir og neyðarútgang. 

Við brottför skal ræsta íbúðina vel, skilja við hana eins og við óskum að koma að henni sjálf.

Félagið áskilur sér rétt til að láta ræsta húsið á kostnað leigjenda ef viðskilnaður er ekki viðunandi. Verð fyrir þrif er kr.25.000. Ef gera á athugsemdir við aðkomu eða þrif á húsinu, vinsamlegast takið myndir samdægurs á komudegi. Sendið myndir og athugasemdir á stamos@stamos.is                                                                                                             Grillið: Vinsamlegast þrífið grind og bakka vel eftir notkun.

Vinsamlegast skiljið ekki eftir þurrmat eða frystivöru í íbúðinni við brottför.

Stranglega bannað að framleigja íbúðina eða afhenda hana öðrum til dvalar en þeim sem hún er leigð til af félaginu.

Algengar spurningar

Bókun og aðstoð

Hvernig á að sækja um orlofshús?

Smellt er á hnapp hér fyrir neðan "Bóka á orlofsvef", til að fara inn á orlofsvefinn.

Allar bókanir á orlofshúsum, sem og kaup á gjafabréfum og kortum, fara fram á orlofsvefnum með innskráningu með rafrænum skilríkjum.

Athugið að bókun telst ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur verið innt af hendi.

Afbókanir og breytingar á bókunum, svo sem að bæta við aukadögum, fara einnig fram á orlofsvefnum.

Þarftu aðstoð?