Verð kr. 6.000
fyrir félagsmenn Stamos
Gildir: 1 maí - 15 september
Um þennan kost
Afsláttarkjör
Niðurgreiðsla til félagsmanna kr. 3.900 pr. kort
Hvernig nýti ég mér þetta?
- Félagsmönnum STAMOS býðst að kaupa Veiðikortið á afsláttarkjörum. Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 35 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. Eiganda kortsins ber að merkja kortið á bakhlið með kennitölu sinni.
Skilmálar
- Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit. Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber að sýna Veiðikortið og persónuskilríki eða samkvæmt reglum í bæklingi.
- Veiðimenn hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja ekki eftir sig rusl eða önnur ummerki.
- Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. Eiganda kortsins ber að merkja kortið á bakhlið með kennitölu sinni.
- Veiðimönnum ber að virða þær reglur sem kynntar eru á upplýsingasíðum vatnanna, en mismunandi reglur geta gilt á milli vatnasvæðanna.
Stamos skrifstofa
Þarftu aðstoð?