Hekla mannauðssjóður
Í gegnum Mannauðssjóðinn Heklu geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðsfélagar í Heklu.
Hámarksupphæð
170000
Afgreiðslutími
6-8 vikur
Flokkur
Ferða- og fræðslustyrkur
Um styrkinn
Í gegnum Mannauðssjóðinn Heklu geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðsfélagar í Heklu.
Sótt er um á heimasíðu sjóðsins.
https://www.mannaudssjodur.is/
Mannauðssjóðurinn Hekla er starfsþróunarsjóður og hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnana þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun. Veittir eru styrkir til:
· Sveitarfélaga, stofnana og vinnuveitenda sem greiða í sjóðinn.
· Stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum.
· Verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur eða á aðkomu að.
Umsóknir skulu sendar í gegnum umsóknargátt á heimasíðu sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því verkefni sem sótt er um styrk til, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda.
Greiðslur úr sjóðnum fara fram gegn framvísun á útlögðum kostnaði umsækjenda, stofnunar eða sveitarfélags, sjá úthlutunarreglur. https://www.mannaudssjodur.is/uthlutunarreglur
Sjóðurinn heitir Mannauðssjóðurinn Hekla. Sjóðurinn starfar á grundvelli kjarasamnings Sambands íslenska sveitarfélaga.