Starfsmenntunarsjóður — einstaklingar
Félagsmenn sækja um styrk með því að senda inn umsókn rafrænt. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur áður en sótt er um styrk.
Hámarksupphæð
130.000 kr
Tímabil
130.000 kr á tveggja ára tímabili
Afgreiðslutími
4-6 vikur
Flokkur
STAMOS Styrkir
Um styrkinn
Félagsmenn sækja um styrk með því að senda inn umsókn rafrænt. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur áður en sótt er um styrk.
- Þegar félagsmaður hefur greitt iðgjöld í sjóðinn í 6. mánuði
- 1Reikningur fyrir námi eða námskeiði með nafni og kennitölu umsækjanda.
- 2Staðfesting á greiðslu námsins með nafni og kennitölu.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Stamos.
Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð
Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður STAMOS og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í þessari greinagerð.
Tekjur sjóðsins eru :
a) Framlag bæjarsjóðs samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar og Bæjarsjóðs Mosfellsbæjar.
b) Vaxtatekjur.Markmið sjóðsins eru:
Að styrkja félaga í STAMOS til náms er nýtist viðkomandi í starfi. Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gerir þá hæfari einstaklinga.Heimilt er að sjóðurinn taki þátt í kostnaði af námskeiðum eða einstökum fyrirlestrum fyrir starfshópa eða félagsmenn STAMOS almennt, sem efnt kynni að vera til fyrir forgöngu STAMOS eða Mosfellsbæjar eða þessara aðila sameiginlega. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja fræðslu- og menningarferðir einstakra starfshópa.
Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.
Reglur þessar skulu endurskoðaðar í febrúar ár hvert.
Reglugerð þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar.
Tók gildi 22. maí 2008
Úthlutunarreglur
Sækja um starfsmenntunarsjóður — einstaklingar
130.000 kr
Afgreiðslutími: 4-6 vikur
Úthlutunarreglur