Fara beint í efni
Stamos styrkir

Starfsmenntasjóður — hópar

Hópumsókn: Umsjónarmaður umsóknar sækir um styrkinn fyrir hópinn og heldur utan um gögn. Eingöngu umsjónarmanni umsóknar er svarað um stöðu umsóknar eða annarra fyrirspurna er varða umsóknina.  Vanda skal frágang umsóknar og öll fylgiskjöl þurfa að berst með umsókninni.

Hámarksupphæð

130.000 kr

Tímabil

130.000 kr á tveggja ára tímabili

Afgreiðslutími

4-6 vikur

Flokkur

Stamos styrkir

Um styrkinn

Hópumsókn: Umsjónarmaður umsóknar sækir um styrkinn fyrir hópinn og heldur utan um gögn. Eingöngu umsjónarmanni umsóknar er svarað um stöðu umsóknar eða annarra fyrirspurna er varða umsóknina.  Vanda skal frágang umsóknar og öll fylgiskjöl þurfa að berst með umsókninni.

Skilyrði fyrir styrk
  • Engin lágmarkstími á greiðslu iðgjalda
Nauðsynleg gögn
  • 1
    Nafnalisti Stamosfélaga m/kennitölum, bankaupplýsingum og netföng (excel skjal) með undirskrift yfirmanns. (sem sönnun þess að þeir starfsmenn sem eru á listanum hafi farið í ferðina) -Afrit af hópfarseðli eða tilboðið í hótel og flug sem þið fenguð fyrir hópinn. -Staðfesting frá þeirri stofnun sem er heimsótt -Dagskrá ferðar, tilgang og markmið -Greitt er að ferð lokinni -Ef fylgiskjölum er ábótavant eða uppfylla ekki skilyrði er umsókn frestað eða synjað
Hvernig sæki ég um?
1

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Stamos.

Mikilvægt að vita

Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð

1. gr. Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður STAMOS og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í þessari greinagerð.

2. gr. Tekjur sjóðsins eru :
a) Framlag bæjarsjóðs samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsmannafélags
Mosfellsbæjar og Bæjarsjóðs Mosfellsbæjar.
b) Vaxtatekjur.

3. gr. Markmið sjóðsins eru:
Að styrkja félaga í STAMOS til náms er nýtist viðkomandi í starfi. Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gerir þá hæfari einstaklinga.

4. gr. Heimilt er að sjóðurinn taki þátt í kostnaði af námskeiðum eða einstökum fyrirlestrum fyrir starfshópa eða félagsmenn STAMOS almennt, sem efnt kynni að vera til fyrir forgöngu STAMOS eða Mosfellsbæjar eða þessara aðila sameiginlega. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja fræðslu- og menningarferðir einstakra starfshópa.

5. gr. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.

6. gr. Reglur þessar skulu endurskoðaðar í febrúar ár hvert.

7. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar.

Tók gildi 22. maí 2008

Reglur í pdf

Úthlutunarreglur

Sækja um starfsmenntasjóður — hópar

130.000 kr

Sækja um núna

Afgreiðslutími: 4-6 vikur

Þarftu aðstoð?

Ef þú hefur spurningar um þennan styrk eða þarft aðstoð við umsókn, ekki hika við að hafa samband.

Til baka í styrkjalista